miðvikudagur, 19. september 2007

aftur

Hafa þá orð blogga minna merkingu sína misst eða hvað er orginal yee.
gleymdi mér, flýtti mér of mikið.
nú taka þær próf kvennaskóla píur og ég reyni að þegja uppi við töfluna.

fimmtudagur, 23. ágúst 2007

je minn frammhaldskólafiðringur

Maginn að komast í lag eftir stress fyrir mína fyrstu MH-tíma.
Mikið get ég stressað mig yfir að koma fram og kenna.
En allt var mjög skemmtilegt, hellingur af unglingum, ekki margir geyspandi.
Frábært Starf sem ég hef.
geng um emmháíska ganga og stundun líður mér eins og ég sé að verða of sein í efnafræði og ég hafi kannski tínt veskinu eða lykjunum og ég muni ekki allveg eftir munnlega dönskuprófinu. flassbakk frá þæilegri fortíð og meira að segja myndir frá minni MH tíð á veggjunum . Heimilislegt. og ég vonanadi komin til að vera um stund.

föstudagur, 10. ágúst 2007

afmælídag

Hann á hann Hugi afmæli
Húrra húrra húrra húrra
einn fingur á hverri hendi svona er hann gamall.
grætur á leikskóla en fær súkkulaðiköku og gúmmulaði þegar hann kemur heim.

vslnmnhelgi

Þankagil-Þakgil er eins og hola í tröllalegt hraunið.
Tjöldin í kringum okkur fuku og hælarnir börðust varla ofaní grýtta jörðina.
Við þraukuðum og pössuðum að hafa alltaf nóg í bjórdósunum svo að þær fykju ekki úr höndunum á okkur.
Gegnum að jökli og með vindinn í bakið um magnaða náttúru.
Börnin á bakinu, hor í nefinu. fótskriða niður í læk og grill.

föstudagur, 27. júlí 2007

2-5-6

Ef saman er komið fleira en eitt af einhverju þá telur Hugi.
Og flest ef ekki allt viðist vera sex.
hann bendir og telur glaður 2-5-6.

Nú hef ég þrá í að labba á fjall og sofa í tjaldi, detta í læk og glannast með grill.

fimmtudagur, 5. júlí 2007

daglegt mál

Hitapottar frá Normex
Rafskutlur frá Eirbergi

Kannast hlustendur við þessa nytjahluti.
Það er að segja hlustendur útvarps landsmanna(nr.1).

föstudagur, 29. júní 2007

Sjálfsíkveikja

Brúðkaup að baki. Hvet vinkonurnar til að halda þessu áfram enda eru svona veislur hin besta skemmtun.
Ég er anars að safna leikjum sem hægt er að nota í tungumálakennslu, helst leikjum þar sem maður á að hoppa og hlaupa, kalla og góla. og þar sem markmiðið er að sigra og í sigrinum felist upphefð og sigurvíma.
Ef að þú veist um sniðugan leik máttu endilega segja mér frá, eða koma í garðinn minn og leika hann með mér. Er farinn í garð með kaff og bók enda skín sól og ég vil brenna húð mína.
þetta er ég að hlusta á þessa dagana: http://www.elsuenodemorfeo.com/

miðvikudagur, 20. júní 2007

drungi hversdagsins!

Afmælið yfirstaðið og þá var farið í skrúðgöngu og hoppað í hoppuköstulum Hljómskálagarðsins. í gær hjólaði ég 20 km og tíndi svo kílómetramælinum. og þá verður mér hugsað til hjólandi stunda á Spáni þær litu svona út.

Hér erum við á Puente de Reina að brosa.
góðar stundir og besti félagskapurinn.

fimmtudagur, 14. júní 2007

Dugnaður

Í Hagkaupum á Eiðistorgi eru til sjö tegundir af hunangi. í hillunni við hliðina á hunanginu eru sjö tegundir af sírópi. við búum á frjálsum markaði þar sem lögmál framboðs og eftirspurnar ráða ríkjum.
Ég hef sýnt dugnað í dag og gerði mér ferð í Hagkaup til að kaupa mér rándýrt kaffi, með merkinu starbucks, og síðan keypti ég líka minnstu kantalópumelónu sem ég hef séð. Hef náð að forðast að lýta á ritgerðina í allan morgun.
Í dag á Tinna frænsa afmæli - húrra fyrir henni!

mánudagur, 11. júní 2007

að ferðinni lokinni

Ég er komin heim með óstöðvandi þörf til að pedala með fótum. börnin skiptust á að hlægja og gráta þegar þau sáu okkkur á flugvellinum og hafa haldið því áfram í þá daga sem við höfum verið heima. Nú þarf ég að gera eitt stikki ritgerð en mig langar bara að hjóla og fá mér kaffi með sykri og mjólk. mér var annrs boðin þessi fína vinna þegar ég vara á leið upp fjallgarða Galisíu, með vindinn í fangið og rok í hári, þá vara hringt og mér boðið að kenna í MH ég sagði já og hélt áfram að padala.
ég heyri café con leche kalla á mig í huganum. ég er að koma.

föstudagur, 11. maí 2007

uppgjör/misgjörð

Ég áttaði mig á villu míns vegar þegar ég leit inn til Gulla frænda míns og sá þar nafnið mitt enn. Ég var búin að tína og glata kunnáttunni til að fara inn á bloggið mitt og gat því ómögulega látið heiminn vita af gjörðum mínum hvað þá misgjörðum mínum sem eru altént spennandara umfjöllunarefni.
misgjörð mín þennan morguninn var að gleyma, það fórst fyrir, að búa til sjúkrapróf fyrir einn nemandastaulann sem í bjartsýni sinni og vorsinsvon hélt að hann gæti kannski staðist hinar þungu prófraunir spænskukennarans. en ég gleymdi sumsé að útbúa slíkt próf og varð skrópagemlingurinn að bíða og svitna í eftirsjá og kvíða í tuttugu langar mínútur þar til ég hafði grafið upp gamast prof sem hann nú borgar sig yfir og í laumi grætur yfir því að hafa ákveðið að eyða þessum sólbjarta morgni í að fara í próf.
Ég er annars á leiðinni til Spánar eftir 9 daga og ligga ligga lá.